Category: Uncategorized

  • Grunnskólamót Íslands og Sveitaglíma að Laugarvatni

    Grunnskólamót og Sveitaglíma að Laugarvatni

    Grunnskólamót og Sveitaglíma Íslands yngri flokka fara fram að Laugarvatni Laugarvatni 28. febrúar.
    Keppni hefst kl. 11 og skráningar á mótið eru yfir 50.

    Á Grunnskólamóti er keppt í 5.-10. bekk, strákar og stelpur.
    Í Sveitaglímu senda félög þriggja manna lið sem keppa innbyrðis í þremur aldursflokkum.

    Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og styðja við bakið á glímustjörnum framtíðarinnar.


    Ljósmyndari: Antanas Šakinis Photography
  • Heiðursmerki

    Aðalsteinsbikarinn fór fram í íþróttahúsinu á Reyðarfirði 27. desember.
    Við sama tilefni voru veitt tvö heiðursmerki Glímusambandsins.

    Ásmundur Hálfdán Ásmundsson hlaut bronsmerki sambandsins fyrir áralangt starf í þágu glímunnar.
    Ásmundur sat í stjórn Glímusambandsins 2019-2021 og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sambandið.
    Ásmundur varð glímukóngur Íslands sex ár í röð 2016-2022 (2020 undanskilið v/Covid. Þar með skipaði hann sér sess á meðal sigursælustu glímumanna Íslands fyrr og síðar.
    Hann hefur farið margar ferðir í gegnum samskipti við Keltneska fangbragðasambandið o.fl., bæði sem þjálfari og keppandi, og margsinnis hlotið verðlaun fyrir sinn árangur á í keltneskum fangbrögðum.

    Atli Már Sigmarsson hlaut silfurmerki sambandsins fyrir áratuga starf í þágu glímunnar.
    Hann sat í stjórn Glímusambandsins frá 2011-2015.
    Atli Már hefur verið dómari síðan 2005 og fór strax að láta til sín taka á landsmótum. Hann hlaut A-réttindi landsdómara 2011 og hefur síðan verið meðal fremstu dómara landsins. Atli Már tók svo við formennsku Glímudómarafélags Íslands árið 2022.


              Þóroddur Helgason, Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, Atli Már Sigmarsson, Þorvaldur Aðalsteinsson og Guðjón Magnússon

  • Bikarglíma Íslands 2026 – Úrslit

    Bikarglíma Íslands fór fram í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði  laugardaginn 31. Janúar 2026. 
    Mótstjórar voru Guðjón Magnússon og Kjartan Lárusson.
    Keppt var í barna- og fullorðinsflokkum og fór mótið mjög vel fram, þar sem dómarar þurftu ekki að veifa einu einasta spjaldi!
    Margir áhorfendur voru mættir til að styðja við hina fjölmörgu keppendur. Sumir voru þar að stíga sin fyrstu skref á landsmótum og sáust glæsileg tilþrif hjá þeim.

    Eftir mót voru veittar viðurkenningar fyrir efnilegusta glímufólkið árið 2025, en þau voru veitt þeim Matthíasi Erni Kristinssyni og Maju Petu, en þau eru bæði frá Reyðarfirði. Einnig var veitt viðurkenning fyrir Eldhuga ársins 2025, en hana hlaut Atli Már Sigmarsson, formaður Glímudómarafélags Íslands.

    Úrslit mótsins voru á þessa leið:

       12 ára strákar                                          Félag      1       1       2       2              Vinningar

    1. Sigurbjörn Leó Marinósson                     UÍA        X      X       1        1              2

    2. Hafsteinn Árni Bergsteinsson       UÍA         0       0      X       X            0

     

       11 ára strákar                    Félag  1          2          3          4                                 Vinningar

    1. Leví Máni Kristjánsson     UÍA     X         1          1          1                                 4

    2. Hallgrímur Ketilsson         UÍA     0          X         1          1                                 2

    3. Rúnar Leó Tryggvason      UÍA     0          0          X         1                                 1

    4. Heiðar Helgi Sveinsson     UÍA     0          0          0          X                                 0

     

       11 til 13 ára stúlkur          Félag  1          2          3                                              Vinningar

    1. Angela Ósk Ómarsdóttir   UÍA     X         1          1                                             2

    2. Viktoría Von Davíðsdóttir UÍA     0          X         1                                             1

    3.Viktoría Von Davíðsdóttir  UÍA     0          0          X                                            0

    Angela Ósk Ómarsdóttir       UÍA     Bikarmeistari 13. ára stúlkur

     Viktoría Von Davíðsdóttir    UÍA     Bikarmeistari 12. ára stúlkur

    Viktoría Von Davíðsdóttir     UÍA     Bikarmeistari 11. ára stúlkur

     

    Unglingar 11-20 ára – 80 kg                       Félag  1          1          2          2                      Vinningar

    1. Þórhallur Karl Ásmundsson          UÍA     X         X         1          1                      2           

    2. Benóní Meldal Kristjánsson          UDN   0          0          X         X                     0

        Karlar – 80 kg                              Félag  1          2          3                                  Vinningar

    1.  Gústaf Sæland                               KR      X         1          1                                 2

    2. Þórhallur Karl Ásmundsson          UÍA     0          X         1                                 1

    3. Benóní Meldal Kristjánsson          UDN   0          0          X                                 0

     

       Karlar + 90 kg                               Félag  1          2          3          4                      Vinningar

    1. Þórður Páll Ólafsson                     KR      X         1          1          1                      3

    2. Hákon Gunnarsson                     UÍA     0          X         1          1                      2

    3. Hjörtur Elí Steindórsson                UÍA     0          0          X         1                      1

    4. Alexander Beck                             KR      0          0          0          X                     0

     

       Opin flokkur                                 Félag  1          2          3          4          5            Vinningar

    1. Hákon Gunnarsson                        UÍA     X         1          1          1          1          4   

    2. Þórður Páll Ólafsson                      KR      0          X         1          1          1          3

    3. Alexander Beck                             KR      0          0          X         1          1/2       1,5

    4. Gústaf Sæland                                KR      0          0          0          X         1          1

    5. Hjörtur Elí Steindórsson                UÍA     0          0          1/2       0          X         0,5

     

    Glímustjóri; Þóroddur Helgason                       

    Ritari; Þuríður Haraldsdóttir

    Tímavörður:  Þuríður R Sigurjónsdóttir

    Yfirdómari:  Atli Már Sigmarsson

    Meðdómarar:    Kristín Embla Guðjónsdóttir og Þórður Vilberg Guðmundsson

    Eftirlitsdómari; Rögnvaldur Ólafsson

  • Glímufólk ársins 2025

    Þau Kristín Embla Guðjónsdóttir og Hákon Gunnarsson eru glímukona og glímumaður ársins 2025. Bæði áttu mjög gott ár, Kristín vann Freyjumenið í fjórða sinn og Hákon vann Grettisbeltið í fyrsta sinn. Bæði eru þau bikarmeistarar bæði í sínum þyngdarflokki og í opnum flokki. Kristín er 25 ára og Hákon 20 ára en þau eru bæði í Ungmennafélaginu Val á Reyðarfirði.

    Þau verða heiðruð ásamt öðrum íþróttamönnum sambanda innan ÍSÍ, í hófi í Hörpunni þann 3. janúar 2026, þegar kjöri Íþróttamanns ársins er lýst.

  • Mótaskrá, vor 2026

    Mótaskrá fyrir glímumót á vegum sambandsins frá janúar til maí 2026 hefur verið samþykkt í
    stjórn Glímusambandsins. Sú breyting hefur verið gerð að Íslandsmótinu hefur verið frestað um viku, til 28. mars.

    Glímumót Glímusambandsins til vors 2026

    31. janúar Reyðarfjörður Bikarglíma Íslands
    28. febrúar Suðurland Grunnskólamót
    28. mars Reykjavík Íslandsmót
    11. apríl Íþróttamiðstöðin Búðardal Íslandsglíman

    Add Your Heading Text Here

  • Haustmót GLÍ – Úrslit

    Haustmót GLÍ – Úrslit

    Haustmót GLÍ fór fram í Melaskólanum laugardaginn 15. nóvember.

    Keppt var í flokkkum 10 og 11 ára stráka, unglingaflokki 16-19 ára, karlaflokkum -84 og +84 kg. og opnum flokki. Aðeins ein kona skráði sig til leiks og keppti hún sem gestur í -84kg flokki og opnum flokki

    Í stráka- og unglingaflokkum var keppt tvöföld umferð.

    Í flokki 10 ára stráka vann Hallgrímur Ragnar Hilmarsson HSK, félaga sinn Ólaf Þrastarson HSK.

    Í flokki 11 ára stráka, urðu úrslit þau að Greipur Guðni Hilmarsson HSK sigraði með fullt hús stiga, í öðru sæti var Breki Bjarkarson og Alexander Bjarkarson var í þriðja sæti.

    Í unglingaflokk var sigurvegari Þórhallur Karl Ásmundsson UÍA með 2,5+1 vinning, annar var Mattías Örn Kristinsson  UÍA með 2,5+0 vinninga og í þriðja sæti var Guðjón Óli Inguson KR með 1 vinning

    Í karlaflokki -84 kg var sigurvegari Gústaf Sæland KR með 3 vinninga, Þórhallur K. Ásmundsson var annar með 2 vinninga og Mattías Ö. Kristinsson þriðji með 0 vinninga. Kristín Embla Guðjónsdóttir keppti sem gestur og hlaut 1 vinning.

    Í +84 kg. flokki voru 5 keppendur. Guðjón Óli Inguson KR gekk úr keppni eftir fyrstu viðureign. Sigurvegari varð Hákon Gunnarsson UÍA með 2,5 + 1 vinning, annar varð Þórður Páll Ólafsson KR með 2,5 +0 vinninga, Alexander Beck KR var þriðji með 0,5 + 1 vinning og fjórði Gunnar Freyr Þórarinsson KR með 0,5 +0 vinninga.

    Hörku keppni var í opnum flokki og tóku 7 keppendur þátt og einn gestur að auki.

    Úrslit urðu þessi:

    Sæti

    Nafn

    Félag

     Vinningar

    1

    Hákon Gunnarsson

    UÍA

    6

    2

    Þórður Páll Ólafsson

    KR

    5

    3

    Þórhallur Karl Ásmundsson

    UÍA

    3,5

    4

    Gústaf Sæland

    KR

    3

    5-6

    Gunnar Freyr Þórarinsson

    KR

    1,5

    5-6

    Mattías Örn Kristinsson

    UÍA

    1,5

    7

    Alexander Beck

    KR

    0,5

    Gestur

    Kristín Embla Guðjónsdóttir

    UÍA

    0,5

     

    Verðlaun afhenti Ingi Þór Yngvason, sem var glímukóngur 4 sinnum á áttunda og níunda áratug síðustu aldar, en hann og tvíburabróðir hans, Pétur V. Yngvason unnu Íslandsglímuna samtals 9 sinnum frá 1975 til 1988.

    Sérstakir gestir á mótinu voru auk Inga Þórs, Eiríkur Þorsteinsson, Halldór Konráðsson, Sigurjón Leifsson og Þorvaldur Þorsteinsson en þeir voru í sýningarflokki Glímusambandsins á 100 ára afmæli Íslendingadagsins í Gimli í Kanada sumarið 1975, fyrir 50 árum. Í sýningaflokknum voru auk þeirra, Gunnar J. Ingvarson, Guðmundur Kr. Ólafsson og Haukur Valtýsson, sem ekki áttu heimangengt. Þeir 4 aðrir sem í hópnum voru og eru látnir, voru Guðmundur Freyr Halldórsson, Hjálmur Sigurðsson, Óskar Valdimarsson og Pétur V. Yngvason.

     

  • 60 ára afmæli Glímusambandsins

    Haldið var uppá 60 ára afmæli Glímusambandsins í hófi að Hótel Seli, Mývatnssveit, miðvikudaginn 5. nóvember

    Um 20 gestir mættu á samkomuna. Í tilefni afmælisins afhenti formaður Glímusambandsins, þeim feðgum Gunnari Brynjarssyni og Pétri Gunnarssyni, sem var glímukóngur 2008, bronsmerki GLÍ, sem var löngu orðið tímabært.

    Á myndinni standa þeir feðgar sinn hvoru megin við formann Glímusambandsins, Rögnval Ólafsson.

    Glímusambandið þakkar þeim sem komu og Yngva Ragnari fyrir mótttökurnar og viðurgerninginn.

  • Flokkaglíma KR 2025

    Flokkaglíma KR fór fram í íþrótttahúsi Melaskóla 5. nóvember 2025.
    Keppt var í þremur flokkum fullorðinna og einum sveinaflokki, og voru keppendur 8 talsins.
    Keppnin fór vel fram þar sem glímumenn sýndu góða bragðfimi og glímdu af miklum drengskap.
    Mótsstjóri var Jón Birgir Valsson

    Úrslit mótsins voru eftirfarandi:

    Glímustjóri, ritari og tímavörður: Jón Birgir Valsson
    Yfirdómari: Helgi Bjarnason
    Meðdómarar: Ásgeir Víglundsson og Ólafur Haukur Ólafsson

    Sveinaflokkur
    1. Breki Þór Bjarkarson
    2. Alexander Þór Bjarkarson
    3. Óskar Hugi Daðason

    -84 kg karlar
    1. Gústaf Sæland
    2. Guðjón Óli Inguson

    +84 kg karlar
    1. Þórður Páll Ólafsson
    2. Alexander Beck
    3. Gunnar Freyr Þórarinsson

    Opinn flokkur karla
    1. Þórður Páll Ólafsson
    2. Gústaf Sæland
    3. Alexander Beck
    4. Gunnar Freyr Þórarinsson
    5. Guðjón Óli Inguson