Hér er ársskýrsla Glímusambandsins árið 2025.
Skýrslan er skemmtilega myndskreytt ásamt ýmsum fróðleik um glímuárið 2025.
Þar er meðal annars að finna glímuárbók ársins og ársreikning fyrir 2025.
Hægt er að skoða skýrsluna hér að neðan:
Hér er ársskýrsla Glímusambandsins árið 2025.
Skýrslan er skemmtilega myndskreytt ásamt ýmsum fróðleik um glímuárið 2025.
Þar er meðal annars að finna glímuárbók ársins og ársreikning fyrir 2025.
Hægt er að skoða skýrsluna hér að neðan:
Laugardaginn 6. júní 2026 kl. 14:00, verður Glímuþing haldið í Íþróttamiðstöðinni í Reykjavík.
Sambandsaðilar hafa fengið upplýsingar um fjölda þátttakenda sem kemur í þeirra hlut.
Dagskrá verður með hefðbundnu sniði.

115. Íslandsglíman fór fram í íþróttamiðstöðinni í Búðardal í fyrsta sinn í dag.
8 keppendur voru skráðir í karlaflokki og 3 í kvennaflokki.
Keppni fór mjög vel fram og sáust margar góðar glímur.
Í karlaflokki varð hlutskarpastur Hákon Gunnarsson, ÚÍA en hann lagði alla andstæðinga sína örugglega.
Kristín Embla Guðjónsdóttir, ÚÍA, varð efst í kvennaflokki, einnig með fullt hús stiga.
Þau eru bæði ríkjandi glímukóngur og glímudrottning og vörðu því titilinn frá fyrra ári.
Hákon varð glímukóngur annað árið í röð, en Kristín var að vinna mótið í fimmta sinn.
Úrslit voru eftirfarandi:
Karlaflokkur
1. Hákon Gunnarsson ÚÍA
2. Þórður Páll Ólafsson KR
3. Gústaf Sæland KR
4. Gunnar Freyr Þórarinsson KR
5. Þórhallur Karl Ásmundsson
6.-7. Þórarinn Páll Þórarinsson GFD
6-7.Alexander Beck KR
8. Benóní Meldal GFD
Kvennaflokkur:
1. Kristín Embla Guðjónsdóttir ÚÍA
2. Sigurdís Sóley Lýðsdóttir GFD
3. Lovísa Ýr Jóhannsdóttir HSK
Keppnisröð á Íslandsglímunni 2026:
1. Þórarinn Páll – Þórður Páll
2. Gústaf Sæland – Þórhallur Karl
3. Gunnar Freyr – Benóní Meldal
4. Alexander Beck – Hákon
5. Kristín Embla – Lovísa Ýr
6. Þórarinn Páll – Gústaf Sæland
7. Þórður Páll – Þórhallur Karl
8. Gunnar Freyr – Alexander
9. Benóní Meldal – Hákon
10. Kristín Embla – Sigurdís Sóley
11. Þórarinn Páll – Þórhallur Karl
12. Gústaf Sæland – Þórður Páll
13. Gunnar Freyr – Hákon
14. Alexander Beck – Benóní Meldal
15. Lovísa Ýr – Sigurdís Sóley
16. Þórarinn Páll – Gunnar Freyr
17. Þórhallur Karl – Hákon
18. Gústaf Sæland – Alexander Beck
19. Þórður Páll – Benóní Meldal
20. Kristín Embla – Lovísa Ýr
21. Þórarinn Páll – Hákon
22. Þórhallur Karl – Gunnar Freyr
23. Gústaf Sæland – Benóní Meldal
24. Þórður Páll – Alexander Beck
25. Kristín Embla – Sigurdís Sóley
26. Þórarinn Páll – Benóní Meldal
27. Gústaf Sæland – Hákon
28. Þórhallur Karl – Alexander Beck
29. Gunnar Freyr – Þórður Páll
30. Lovísa Ýr – Sigurdís Sóley
31. Þórarinn Páll – Alexander Beck
32. Benóní Meldal – Þórhallur Karl
33. Gústaf Sæland – Gunnar Freyr
34. Hákon – Þórður Páll
115. Íslandsglíman fer fram í íþróttamiðstöðinni í Búðardal laugardaginn 11. apríl klukkan 14:00.
Þar mun okkar fremsta glímufólk etja kappi og reyna að ná í eftirsóttasta verðlaunagrip glímunnar.
Í kvennaflokki er keppt um Freyjumenið en hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið glímudrottning Íslands.
Í karlaflokki er keppt um Grettisbeltið, elsta verðlaunagrip á Íslandi, og hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið glímukóngur Íslands.
Fróðleiksmolar um Íslandsglímu
– Fyrsta Íslandsglíman fór fram á Akureyri árið 1906.
Fyrsti glímukóngur Íslands var Ólafur Valdimarsson frá Vopnafirði.
– Fyrsta Íslandsglíma kvenna fór fram 18. júní 2000. Þá kepptu ellefu stúlkur um Freyjumenið og hafa aldrei verið fleiri.
Inga Gerða Pétursdóttir frá Reykjahlíð í Mývatnssveit varð fyrsta glímudrottning Íslands.
– Svana Hrönn Jóhannsdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir hafa báðar unnið Freyjumenið sex sinnum.
– Ármann J. Lárusson hefur oftast unnið Grettisbeltið, eða fimmtán sinnum á árunum 1952-1967.
– Núverandi glímudrottning er Kristín Embla Guðjónsdóttir frá Reyðarfirði, en hún hefur unnið mótið fjórum sinnum.
– Núverandi glímukóngur er Hákon Gunnarsson frá Reyðarfirði, en hann varð glímukóngur í fyrsta sinn 2025.
Myndir frá Íslandsglímu 2025
Myndir: Antanas Šakinis Photography
Íslandsmót GLÍ fór fram í Íþróttahúsi Kennaraháskólans í Reykjavík laugardaginn 28. mars 2026.
Mótstjóri var Kjartan Lárusson.
Rögnvaldur Ólafsson, formaður GLÍ, minntist Hjörleifs Pálssonar fyrrverandi glímumanns sem lést nýverið.
Hjörleifur náði þeim árangri að keppa með fjórum Reykjavíkurfélögum: KR, Fjölni, Víkverja og Ármanni.
Jafnframt veitti formaður GLÍ Evu Dögg Jóhannsdóttur bronsmerki GLÍ.
Mótið tókst mjög vel og mættu margir áhorfendur að hvetja keppendur.
Úrslit mótsins voru eftirfarandi:


Formaður GLÍ Rögnvaldur Ólafsson og varaformaður GLÍ Kjartan Lárusson fóru og heim sóttu Kjartan Helgason í Haga á áttatíu og einsárs afmælis hans og sæmdu hann gullmerki GLÍ fyrir langt og mikið starf í þágu glímunnar.
Kjartan stundaði nám í Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal veturinn 1961 -62 og kynntist þar glímunni.
Keppnis ferill hans nær yfir tuttugu ár og varð hann þrisvar sinnum Skjaldarhafi Skarphéðins 1981, 1984 og 1985. Hann stóð alltaf vel að glímunni. Kjartan sá um þjálfun glímumanna á Borg í Grímsnesi frá 1979 til 1987 með mjög góðum árangri, margir af bestu glímumönnum HSK fengu sína fyrstu kennslu hjá honum. Kjartan var lengi formaður glímunefndar HSK á annan áratug.
Stjórn GLÍ óskar honum innilega til hamingju með viðurkenninguna.
Sveitaglíma 11-16 ára fór fram í Íþróttahúsinu á Laugarvatni laugardaginn 28. febrúar 2026 af loknu grunnskólamóti.
Mótstjóri var Kjartan Lárusson.
Keppt var í flokkum 11-16 ára drengja og stúlkna mættu 11. sveitir til leiks, fór mótið mjög vel fram, Margir áhorfendur voru mættir til að styðja við hina fjölmörgu keppendur. Sáust mörg glæsileg tilþrif hjá þeim. Helgi Kjartansson oddviti Bláskógabyggðar afhenti verðlaun með aðstoð formanns GLÍ Rögnvaldar Ólafssonar.
Úrslit mótsins voru á þessa leið:




Grunnskólamót GLÍ fór fram í Íþróttahúsinu á Laugarvatni laugardaginn 28. febrúar 2026.
Mótstjóri var Kjartan Lárusson.
Keppt var í 5 – 10 bekk drengja og stúlkna mættu 38 keppendur, fór mótið mjög vel fram, þar sem dómarar þurftu ekki að veifa nema einu einu spjaldi
Margir áhorfendur voru mættir til að styðja við hina fjölmörgu keppendur. Sumir voru þar að stíga sin fyrstu skref á landsmótum og sáust glæsileg tilþrif hjá þeim. Helgi Kjartansson oddviti Bláskógabyggðar afhenti verðlaun með aðstoð formanns GLÍ Rögnvaldar Ólafssonar. Sigurvegarinn fékk bikar til eignar.
Úrslit mótsins voru á þessa leið: